4.2.2007 | 11:16
Upphrópunarþingmenn.(pólitíkusar)
Til er sú tegund stjórnmálamanna og áhugamanna um pólitík, sem má nefna upphrópunarmenn. Þar eð þetta fólk talar (skrifar) í upphrópunum eða slagorðum. Þetta fólk hefur það yfirleitt sameiginlegt, að það forðast alla málefnaumræðu en þyrlar í kringum sig orðskreyttum langlokum. Orðum eins og rasismi, kvennaandúð, jafnvel tæpt á heilsu fólks og fleira í þeim dúr. Ég enn og aftur vara fólk við, að taka fólk alvarlega sem talar svona, hvað þá heldur að kjósa það til ábyrgðarstarfa. Blogg hérna á síðunni eftir Einar K Guðfinnsson olli mér miklum vonbrigðum þar mynnist hann aðeins á meint vandamál frjálslyndra og samfylkingarinnar. Ekki mynnist hann einu orði á kvótakerfið kerfi sem hann ber alla ábyrgð á í dag. Þetta ætti að gefa hann næg tækifæri til að blogga hér á mbl heilu næturnar enda hefur þetta kerfið haft hörmulegar afleiðingar fyrir íbúa þessa lands. Þess vegna finnst mér mjög miður að Einar skuli ekki nýta tímann sinn betur. Vonandi les hann þetta og ég trúi því að" batnandi manni sé best að lifa".
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
aum er margrét
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.